spot_img
HomeFréttirCrystal Boyd látin fara frá Grindavík

Crystal Boyd látin fara frá Grindavík

 
Stjórn og þjálfari kvennaliðs Grindavíkur hafa ákveðið að segja upp samningi við bandaríska leikmanninn Crystal Boyd. Hún hefur því sagt sitt síðasta með gulum þetta tímabilið en hún þótti engan vegin standa undir væntingum, hvorki innan vallar né utan segir á heimasíðu Grindvíkinga.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort nýr leikmaður verði fengin til liðsins Grindavík er um þessar mundir á botni B-riðils ásamt Fjölni. Boyd lék 8 deildarleiki með Grindavík í Iceland Express deild kvenna og var með 21,0 stig að meðaltali í leik, 9,1 frákast og 1,9 stoðsendingu.
 
Fréttir
- Auglýsing -