Lið Snæfells í 1. deild karla verður án erlends leikmanns síns, Christian Covile, í fyrsta leik úrslitakeppninnar gegn Hamri á morgun. Samkvæmt fréttatilkynningu þurfti Covile að fara af landinu af persónulegum ástæðum.
Ljóst er að um er að ræða mikið áfall fyrir lið Snæfells, en í 24 leikjum spiluðum í vetur hefur Covile skilað 32 stigum, 11 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik.
Bindur félagið einhverjar vonir við að leikmaðurinn nái að taka þátt í úrslitakeppninni með þeim, en leikur 2 á milli liðanna er komandi mánudag í Stykkishólmi.
Fréttatilkynning KKDS:
Stjórn körfuknattleiksdeildar Snæfells hefur gefið Christian Covile leyfi til að vera með fjölskyldu sinni á erfiðum tímum og þrátt fyrir að úrslitakeppnin sé að byrja á morgun er fjölskyldan númer eitt.
Þrátt fyrir að tímasetningin henti ekki körfuboltanum vonast deildin til þess að Chris komi aftur og leiki með okkur í úrslitakeppninni og að allt fari á besta veg hjá Covile fjölskyldunni.
Stjórn KKD Snæfells



