spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaChris Caird yfirgefur Selfoss

Chris Caird yfirgefur Selfoss

Þjálfarinn Chris Caird hefur sagt skilið við Selfoss. Staðfestir þjálfarinn þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Caird kom til Selfoss fyrir fimm tímabilum og hefur síðan þá verið við þjálfun yngri flokka og með meistaraflokk félagsins í fyrstu deild karla. Selfoss hafnaði í 6. sæti deildarinnar á síðasta tímabili með 12 sigra og 15 töp á tímabilinu.

Samkvæmt færslu Chris á samfélagsmiðlum staðfestir hann þann orðróm sem í gangi hefur verið með mögulegt brotthvarf hans frá félaginu. Segist hann ánægður með að skilja við liðið á betri stað heldur en það var á þegar hann kom og er hann þess fullviss að sá sem taki við muni halda áfram að gera góða hluti á Selfossi.

Fréttir
- Auglýsing -