spot_img
HomeFréttirCarmen með 53 stig og 17 fráköst gegn Val

Carmen með 53 stig og 17 fráköst gegn Val

 

Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð Dominos deild kvenna í kvöld. Bar þar kannski hæst að nýliðar Skallagríms unnu meistara síðustu þriggja ára, Snæfell, í stórleik umferðarinnar. Einnig sigruðu hinir nýliðar deildarinnar, Njarðvík, lið Vals í leik þar sem að Carmen Tyson-Thomas skoraði 53 stig og tók 17 fráköst.

 

Úrslit kvöldsins:

 

Grindavík 78 – 63 Haukar

Keflavík 56 – 61 Stjarnan

Njarðvík 77 – 74 Valur

Skallagrímur 73 – 62 Snæfell

Fréttir
- Auglýsing -