spot_img

Calloway á Krókinn

Tindastóll hefur samið við Jacob Calloway um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í Subway deild karla. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Jacob er 203cm framherji og kemur í Skagafjörðinn frá liði KB Peja í Kósovó þar sem hann var með rétt tæp 15 stig í leik í deild og Evrópukeppni.

Pavel Ermolisnki þjálfari Tindastóls þekkir vel til Jacobs en þeir voru einmitt liðsfélagar hjá Val tímabilið 2021-22 þegar félagið varð Íslandsmeistari: “Við sýndum góða og þarfa þolinmæði við leit að leikamanni sem passar inn í hópinn okkar. Jacob kom óvænt á borðið á síðustu dögum og ég vissi strax að þetta væri maðurinn. Hann er fjölhæfur leikmaður sem verður lítið mál að púsla inn. Einnig er þetta topp drengur og það skiptir mig máli. Það gleður mig mjög að liðið okkar er núna allt skipað leikmönnum sem ég sjálfur mundi vilja hafa við hlið mér inn á vellinum.”

Jacob segist spenntur fyrir að vera orðinn hluti af Tindastólsliðinu: “Ég á frábærar minningar frá tíma mínum á Íslandi og Tindastólsserían var einstök. Orkan í stuðningsfólki Tindastóls var svakaleg og ég hlakka til að hafa hana með mér í liði. Ekki skemmir fyrir að það eru kunnuleg andlit í liðinu og það mun eflaust hjálpa mér að aðlagast hratt.”

Fréttir
- Auglýsing -