Undir 16 ára landslið drengja í körfuknattleik heldur áfram að heilla á Norðurlandamótinu í Kisakallio í Finnlandi.
Í dag fagnaði liðið öruggum og afar sannfærandi sigri gegn Svíþjóð 76-103, en frammistaða strákanna var til fyrirmyndar frá upphafi til enda. Um var að ræða leik þar sem íslenska liðið reyndist hreinlega sterkara á öllum sviðum körfuboltans og keyrði yfir sænska liðið jafnt og þétt allan tímann.
Karfan spjallaði við Sigurð Guðnason, Úlf Ágústsson og Kormák Jack eftir leik í Kisakallio.




