Í nótt fóru 11 leikir fram í NBA deildinni. Kevin Durant datt í gírinn þegar Oklahoma lagði New Orleans og Chicago Bulls gerðu góða ferð í englaborgina og lögðu LA Clippers nokkuð þægilega þar sem Derrick Rose fór mikinn.
LA Clippers 88-106 Chicago Bulls
Derrick Rose gerði 32 stig og gaf 11 stoðsendingar í liði Bulls sem unnu sinn sjötta deildarleik í röð en Clippers hefðu í nótt með sigri náð að vinna tíu heimaleiki í röð í fyrsta sinn í sögu Clippers í 35 ár. Það átti ekki að verða þrátt fyrir að jötuninn Blake Griffin setti 32 stig og tæki 13 fráköst ásamt því að gefa 7 stoðsendingar í liði heimamanna.
Oklahoma 104-93 New Orleans
Kevin Durant var sjóðheitur í liði Oklahoma og setti 43 stig yfir Chris Paul og félaga í Hornets. Durant var einnig með 11 fráköst og 5 stoðsendingar. David West var atkvæðamestur hjá Hornets með 20 stig og 15 fráköst og Chris Paul bætti við 15 stigum.
Önnur úrslit næturinnar:
Atlanta 100-87 Toronto
Cleveland 112-117 Indiana
New Jersey 92-106 Philadelphia
Detroit 87-97 Charlotte
New York 97-113 Dallas
Minnesota 84-102 Memphis
Denver 109-90 Portland
Phoenix 92-77 Milwaukee
Utah 96-97 Houston
Mynd/ Rose og Bulls eru á góðu róli um þessar mundir.




