spot_img
HomeFréttirBúið að draga í Lengjubikarnum

Búið að draga í Lengjubikarnum

Í dag var dregið í riðla í Lengjubikar karla og kvenna en dregið var í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal.
Lengjubikar kvenna:
Í Lengjubikar kvenna eru 10 lið. Öll átta liðin úr Domino´s deild kvenna og tvö lið úr fyrstu deild kvenna. Liðin eru eru dregin í tvo riðla en eitt lið er dregið úr hverjum styrkleikaflokki og leika öll liðin innbyrðis í einfaldri umferð. Efsta lið hvors riðils fer í úrslitaleikinn.
 
Fyrsti leikdagur er 9. september en úrslitaleikurinn verður fimmtudaginn 27. september.
 
Liðin eftir styrkleikaflokkum.
1. styrkleikaflokkur: Njarðvík og Haukar
2. styrkleikaflokkur: Keflavík og Snæfell
3. styrkleikaflokkur: KR og Valur
4. styrkleikaflokkur: Fjölnir og Grindavík
5. styrkleikaflokkur: Hamar og Stjarnan
 
Riðlanir:

A
1. Haukar
2. Snæfell
3. Valur
4. Fjölnir
5. Hamar
 
B
1. Njarðvík
2. Keflavík
3. KR
4. Grindavík
5. Stjarnan
 
Lengjubikar karla:
Í Lengjubikar karla eru 16 lið. Öll 12 liðin úr Domino´s deild karla og fjögur lið úr 1. deild karla. Liðin eru dregið í fjóra riðla, eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki. Leikin er tvöföld umferð. Efsta lið hvers riðils fer í undanúrslit eða Final Four.
 
Fyrsti leikdagur er sunnudagurinn 14. október en úrslitin eða Final Four verða föstudaginn og laugardaginn 23. og 24. nóvember.
 
Liðin eftir styrkleikaflokkum.
1. styrkleikaflokkur: Grindavík, KR, Þór Þ. og Stjarnan
2. styrkleikaflokkur: Keflavík, Snæfell, Tindastóll og Njarðvík
3. styrkleikaflokkur: ÍR, Fjölnir, KFÍ og Skallagrímur
4. styrkleikaflokkur: Haukar, Valur, Hamar og Breiðablik
 
Riðlarnir:

A
1. Grindavík
2. Keflavík
3. Skallagrímur
4. Haukar
 
B
1. KR
2. Snæfell
3. KFÍ
4. Hamar
 
C
1. Stjarnan
2. Tindastóll
3. Fjölnir
4. Breiðablik
 
D
1. Þór Þ.
2. Njarðvík
3. ÍR
4. Valur
 
www.kki.is
 
Mynd/ Tomasz Kolodziejski – Grindavík er ríkjandi Lengjubikarmeistari karla og Haukar ríkjandi Lengjubikarmeistarar kvenna.
 
Fréttir
- Auglýsing -