Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Meistarar Miami Heat höfðu öruggan sigur á Milwaukee Bucks 118-95 í American Airlines Arena. LeBron James komst í eftirsóknarverðan klúbb í nótt þar sem hann hefur nú gert 10 stig eða meira í meira en 500 leikjum í röð. Hann er aðeins fimmti leikmaðurinn í sögu NBA til þess að ná þessum áfanga.
James lauk leik með 33 stig, 3 fráköst og 2 stoðsendingar en John Henson var atkvæðamestur í liði gestanna með 18 stig.
Þá komst Þjóðverjinn Dirk Nowitzki í sigri Dallas gegn Washington upp fyrir Jerry West á lista stigahæstu leikmanna í sögu NBA en Nowitzki gerði 19 stig í leiknum í nótt. Nowitzki færðist upp í 16. sæti listans og hefur nú gert 25.197 stig í deildinni og er byrjaður að naga í Reggie Miller fyrrum leikmann Indiana Pacers sem lauk ferli sínum með 25.279 stig. Ekki ósennilegt að Nowitski klári Miller áður en þetta tímabil er úti.
Úrslit næturinnar:
FINAL
7:30 PM ET
MIL
![]()
95
MIA
![]()
118
W
| Q1 | Q2 | Q3 | Q4 | F | |
|---|---|---|---|---|---|
| MIL | 23 | 22 | 17 | 33 | 95 |
|
|
|
|
|
||
| MIA | 32 | 24 | 28 | 34 | 118 |
| MIL | MIA | |||
|---|---|---|---|---|
| P | Henson | 18 | James | 33 |
| R | Middleton | 7 | Wade | 8 |
| A | Knight | 6 | Chalmers | 7 |






