14:46
{mosimage}
(Brynjar Þór Björnsson)
Brynjar Þór Björnsson hefur ákveðið að snúa heim og mun leika með KR það sem eftir lifir tímabils. Brynjar Þór hefur leikið með Francis Marion háskólanum í Bandaríkjunum en er nú kominn heim. Hann eykur enn frekar samkeppni og breidd liðsins.
Frá þessu er greint á heimasíðu KR og þar segir enn fremur að birt verði viðtal við Brynjar Þór á síðunni seinna í dag.



