HomeBónus deildinBónus deild karlaBryant í Bónus deildina

Bryant í Bónus deildina

ÍR hefur samið við sænsk-bandaríska bakvörðinn Jarrett Bryant um að leika með liðinu í Bónusdeild karla á komandi leiktíð.

Bryant er 23 ára gamall, 198 sentímetrar á hæð og kemur beint úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hann lék með Westmont College í NCAA Division II. Hann átti öflugt lokaár í háskóla þar sem hann var stigahæstur í sínu liði með 15,6 stig, 4,8 fráköst og 1,5 stoðsendingar að meðaltali í leik, ásamt því að hitta úr 42% þriggja stiga skota sinna og vera valinn í úrvalslið PacWest-deildarinnar. Þá á hann einnig leiki að baki með U20 ára landsliði Svíþjóðar.

ÍR-ingar fagna komu þessa hávaxna og fjölhæfa bakvarðar í Breiðholtið og hlakka til að sjá hann í hvítu og bláu treyjunni í Skógarselinu í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -