Lið New Jersey Nets er liðin tíð og við tekur lið Brooklyn Nets. Nýtt félagsmerki Nets var frumsýnt nú nýlega og félagslitirnir verða svo sannarlega KR-ingum til mikillar gleði. Nets liðið sem er í eigu rússans ríka Mikhail Prokhorov mun svo hefja leik á næstu leiktíð í glænýrri Barclays höllinni í Brooklyn hverfinu.
Þá verður fróðlegt að fylgjast með hversu miklu fjármagni verðu eytt í leikmenn hjá liðinu en Mikhail Prokhorov ætlaði sér aldrei að vera með miðlungslið í deildinni og vissulega nokkrir stórir bitar á markaðnum.