spot_img
HomeFréttirBreytingar í Röstinni: Griffin á heimleið

Breytingar í Röstinni: Griffin á heimleið

12:20
{mosimage}

(Jonathan Griffin er á heimleið!) 

Grindvíkingar hafa gert breytingu á karlaliði sínu í Iceland Express deildinni í körfuknattleik þar sem Jonathan Griffin mun ekki leika meira með liðinu í ár. Friðrik Pétur Ragnarsson þjálfari Grindvíkinga staðfesti þetta í samtali við Víkurfréttir. Friðrik sagði að um taktíska breytingu væri að ræða og hefur nú fengið til liðs við sig Bandaríkjamanninn Jamaal Williams sem er tæpir 2 metrar að hæð og er honum ætlað að auka styrk Grindavíkur í teignum. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta, www.vf.is  

,,Ég var ekki óánægður með Jonathan Griffin en það sem ég er að gera með þessu er að koma jafnvægi í liðið. Okkur vantar stig inn í teig því af 100 stigum sem við skorum eru 80 stig utan af velli. Ef við ætlum okkur einhverja hluti í úrslitakeppninni verðum við að fá leikmann inn í teig,” sagði Friðrik en Griffin er bakvörður og hefur skorað grimmt fyrir Grindavík í vetur með 23,2 stig að meðaltali í leik. Hann gerði 26 stig og tók 12 fráköst gegn ÍR í tapleik Grindvíkinga í Röstinni í gær.  

Igor Beljanski hefur verið nokkuð meiddur í vetur og taldi Friðrik að tími fyrir svona breytingar væri nú eða aldrei. ,,Griffin var að standa sig vel en það kom mest frá honum í gegnumbrotum eða utan af velli. Ef Igor eða Páll Kristinsson meiðast svo í úrslitakeppninni þá er þetta búið spil hjá okkur ef við höfum ekki meiri breidd í teignum. Við sjáum bara til hvernig þetta kemur út,” sagði Friðrik

Sjá einnig frétt um málið á www.umfg.is  

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -