spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaBreytingar í Bónus deildinni

Breytingar í Bónus deildinni

Þór tilkynnti rétt í þessu að félagið hafi samið við Dachon Burke um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í Bónus deild karla.

Dachon er 29 ára 192 cm bandarískur bakvörður með reynslu frá Kósovó, Ísrael og Litháen, en hann mun koma í liðið í stað Jacoby Ross sem hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Þór.

Tilkynning:

Það er mikil ánægja að tilkynna að Þór Þorlákshöfn hefur samið við bakvörðinn Dachon Burke. Á sama tíma hefur Jacoby Ross sagt skilið við Þór og þökkum við honum fyrir hans framlag til Þórs liðsins.

Dachon hefur spilað nokkuð víða í Evrópu eftir að hann útskrifaðist frá Nebraska háskólanum og spilaði hann síðast í desember í næst efstu deild í Ísrael. Dachone er hávaxinn bakvörður sem hefur skorað mikið í gegnum sinn feril en er líka þekktur fyrir kæfandi varnarleik. Við hlökkum til að sjá hann á parketinu og bjóðum hann velkominn í Hamingjuna.

Fréttir
- Auglýsing -