Breiðablik hafði betur gegn Þór í kvöld í baráttunni um laust sæti i efstu deild að ári þegar liðin mættust í hreinum úrslitaleik sem fram fór í íþróttahúsi Síðuskóla. Töluverð eftirvænting ríkti meðal stuðningsmanna beggja liða sem fjölmenntu á leikinn í kvöld og voru þeir ríflega 200 talsins.
Leikurinn fór rólega af stað og talsverð taugaspenna meðal leikmanna beggja liða en eftir einnar mínútna leik var staðan jöfn 5-5. Gestirnir komust þá yfir og leiddu með 4 stigum 7-11 eftir fjögra mínútna leik. Þá kom góður kafli hjá Þór sem skoraði 11-2 og höfðu fimm stiga forskot þegar annar leikhlutinn hófst 18-13.
Hvorki gekk né rak hjá Þór í upphafi annars leikhluta og gestirnir tóku að saxa á forskotið og eftir sex mínútna leik hafði Breiðablik náð eins stig forskoti 20-21. Það sem eftir lifði leikhlutans skoruðu gestirnir 8-6 og leiddu í hálfleik með þrem stigum 26-29.
Leikur beggja liða var í raun ekki uppá marga fiska í þriðja leikhluta en gestirnir leiddu allan fjórðunginn og um tíma náði liðið 11 stiga forskoti 33-42. Þórsliðið kom muninum niður i sex stig 36-42 þegar lokakaflinn hófst.
Það var einhvern vegin nokk sama hvað leikmenn Þórs reyndu ekkert gekk upp í sóknarleiknum og skoraði liðið aðeins sex stig í fjórða leikhlutanum. Og í raun var sóknarleikur gestanna svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir en liðið skoraði þó 14 stig og fagnaði fjórtán stiga sigri þegar upp var staðið 42-56.
Sigur gestanna var sanngjarn þegar upp var staðið Blikar unnu baráttuna 2-1 og óskum við þeim til hamingju með sigurinn. Slök skotnýting varð Þórsliðinu að falli í kvöld. Skotnýting Þórs í tveggja stiga skotum var 29% gegn 46% gestanna og í þriggja stiga skotum 13% Þórs gegn 17% gestanna. Vítanýting beggja liða 50%.
Stigahæst leikmanna Þórs var Helga Rut Hallgrímsdóttir með 12 stig og hún tók ennfremur 12 fráköst. Rut Herner var með 11 stig, Unnur Lára 9 og 7 fráköst, Thelma Hrund 6 og Erna Rún 4.
Hjá Breiðabliki var Isabella Ósk öflug og skoraði 21 stig og tók 18 fráköst. Sóllilja Bjarnadóttir var með 13 stig og þær Telma Lind og Auður Íris 10 stig hvor og Eyrún Ósk 2 stig.
Eins og áður segir ríkti talsverð eftirvænting meðal stuðningsmanna fyrir þessum leik en ríflega 200 áhorfendur voru á leiknum. Það setti einnig skemmtilegan svip á leikinn að stuðningsmenn beggja liða voru með trommusveit til að keyra áfram stemninguna. Einnig var kynnir leiksins, Haraldur Ingólfsson sem farið hefur á kostum á leikjum karlaliðsins í vetur mættur á svæðið og hélt uppi fjörinu eins og honum einum er lagið. Umgjörðin öll var frábær og aðstandendum til mikilla sóma.
Umfjöllun, myndir / Páll Jóhannesson




