spot_img
HomeFréttirBreiðablik og Fjölnir knúðu fram oddaleik

Breiðablik og Fjölnir knúðu fram oddaleik

 

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni 1. deildar. Um eiginlegar undanúrslitaviðureignir úrslitakeppninnar er að ræða, þar sem að efsta lið deildarkeppninnar, Höttur, hefur þegar tryggt sér sæti í Dominos deildinni komandi tímabil. Fyrir leiki kvöldsins leiddi Hamar gegn Fjölni, 2-1 og Valur gegn Breiðablik, 2-1.

 

Í Kópavoginum sigraði Breiðablik lið Vals. Staðan því 2-2 í einvíginu, en oddaleikur mun fara fram í Valsheimilinu þann 26. næstkomandi kl. 19:30.

 

Í Hveragerði sigraði Fjölnir heimamenn í Hamri. Staðan því einnig 2-2 í því einvígi og mun oddaleikur fara fram þann 25. næstkomandi kl. 17:00.

 

 

 

Úrslit kvöldsins

 

Breiðablik 75 – 72 Valur

Staðan jöfn 2-2 í einvíginu

 

Hamar 114 – 116 Fjölnir eftir tvíframlengdan leik

Staðan jöfn 2-2 í einvíginu

Fréttir
- Auglýsing -