HomeFréttirBreiðablik: Ætlum að leggja meira á okkur en önnur lið

Breiðablik: Ætlum að leggja meira á okkur en önnur lið

Borce Ilievski tók við Breiðablik í sumar af Sævaldi Bjarnasyni. Blikar misstu naumlega af úrslitakeppninni á síðasta tímabili og hafa misst frá sér sterka leikmenn á borð við Snorra Hrafnkelsson og Ágúst Orrason sem hafa samið við Njarðvík og Keflavík í Domino´s-deildinni.
,,Sumarið var gott þar sem ég var í Makedóníu og Serbíu að vinna við sumarbúðir í körfubolta og svo varði ég einnig tíma með U18 ára landsliðum Serbíu og Svartfjallalands en Svartfellingar eru einmitt í sama riðli og Ísland í 18 ára keppninni núna," sagði Borce og þegar við höfðum lokið við að taka sumarpúlsinn á kallinum dembdum við okkur beint yfir í 1. deildina.
 
,,Það hafa orðið nokkrar breytingar hjá okkur. Snorri Hrafnkelsson fór til Keflavíkur en við fengum Pálma Geir frá Tindastól og ég er enn að bíða eftir því að menn detti í hús. Þetta er komið á fullt hjá okkur," sagði Borce en hvernig leggst 1. deildin í hann undir 4-1 reglunni?
 
,,Í grunninn er þetta gott fyrir okkur í Breiðablik. Við höfum góðan kjarna af heimamönnum en þetta gæti mögulega verið slæmt fyrir lið úti á landi þar sem erfitt getur verið að halda úti fullum hópi án nokkurra erlendra leikmanna," sagði Borce en hvernig metur hann möguleika Blikanna?
 
,,Við eigum góða möguleika í vetur, við ætlum okkur að leggja meira á okkur en önnur lið."
 
Breiðablik hefur leik í 1. deild karla þann 12. október næstkomandi þegar ÍA kemur í heimsókn.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -