spot_img
HomeFréttirBrasilía og Kúba leika um síðasta lausa sætið á Ólympíuleikunum

Brasilía og Kúba leika um síðasta lausa sætið á Ólympíuleikunum

21:09

{mosimage}

Yayma Boulet skoraði 24 stig fyrir Kúbu í dag 

Það verða Brasilía og Kúba sem leika um síðasta lausa sætið í kvennakeppni Ólympíuleikanna. Þau unnu bæði andstæðinga sína í undanúrslitum forkeppninnar sem fram fer í Madrid og mætast á morgun í úrslitaleik um sætið.

Brasilía sigraði Angola 75-58 eftir að hafa haft 20 stiga forystu eftir fyrsta leikhluta. Soeli Zakrezeski var stigahæst þeirra brasilísku með 11 stig en Nassecela Maurico skoraði 16 fyrir Angola.

Í hinum undanúrslitaleiknum vann Kúba Japan 66-58. Yayma Boulet skoraði 24 stig fyrir Kúbu en Noriko Koiso skoraði 12 fyrir Japan.

[email protected]

Mynd: www.daylife.com

Fréttir
- Auglýsing -