Bragi í Blue höllina

Keflavík hefur gengið frá samningi við Braga Guðmundsson um að leika með liðinu næstu tvö árin.

Bragi er 22 ára gamall bakvörður sem lék með Ármanni á síðasta tímabili. Þar fór hann mikinn og skoraði um 22 stig að meðaltali í leik. Hjá Keflavík ríkir mikil eftirvænting með komu Braga og er hann í tilkynningu boðinn hjartanlega velkominn í klúbbinn.

Fréttir
- Auglýsing -