HomeFréttirBoston skákaði Orlando í toppslag Austursins

Boston skákaði Orlando í toppslag Austursins

08:45:36
Boston Celtics lögðu Orlando Magic í uppgjöri efstu liðanna í Austurdeild NBA deildarinnar í nótt, 90-80. Sigur Boston, sem batt enda á sjö leikja sigurhrinu Orlando sem hafði fleytt þeim á topp NBA, var jafnvel enn meira sannfærandi en tölurnar gefa til kynna, því vörn meistaranna var þétt og má segja að þeir hafi ekki leikið betri sókn en þeir þurftu.

Boston eru hins vegar komnir á rétt ról á ný og eru komnir á topp Austurdeildarinnar eftir sjö sigurleiki í röð.

Paul Pierce var stigahæstur Boston með 27 stig og tók auk þess 10 fráköst. Hjá Orlando var Hedo Turkoglu með 22 stig.

LA Lakers eru með besta vinningshlutfallið í deildinni eftir léttan og löðurmannlegan sigur á kjallaraliði Washington Wizards, 117-97.

Þessi leikur kláraðist í fyrri hálfleik þar sem Andrew Bynum fór aftur á kostum og gerði 23 stig og tók 14 fráköst, Kobe Bryant hélt sig til hlés með 11 stig, en allir í byrjunarliðinu fóru á bekkinn í upphafi seinni hálfleiks og leyfðu varamönnunum að klára leikinn.

Þó Washington sé ekki gott viðmið er ljóst að Lakers er með mikinn vind í seglunum þegar líður að Stjörnuhelginni, ekki síst vegna frammistöðu Bynums, en miðherjinn ungi virðist loks vera að finna sama form og hann var í áður en meiðsli bundu enda á tímabilið hjá honum í fyrra.

Tölfræði leikjanna

ÞJ

Fréttir
- Auglýsing -