HomeFréttirBoston-Lakers 2-0: Endurkoma Lakers kom of seint

Boston-Lakers 2-0: Endurkoma Lakers kom of seint

10:46

{mosimage}
(Leon Powe fór á kostum í gær. Skoraði 21 stig )

Næstu leikir í einvígi Boston Celtics og L.A. Lakers fara fram á heimavelli Lakers. Boston fara rólegir áleiðis til Los Angeles en þeir leiða 2-0 í einvíginu og eiga því möguleika á að klára einvígið og vinna titilinn á útivelli. Boston vann í nótt 108-102 í leik sem hefði getað orðið ein besta endurkoma sögunnar.

Liðsmenn Boston voru sterkari mest allan leikinn og með frábærum kafla í upphafi 2. leikhluta náðu forystunni og héldu henni út leikinn. Um tíma fór munurinn yfir 20 stigin og var 24 stig þegar um sjö mínútur voru eftir af leiknum. Þá bjuggust flestir við að sigurinn væri í höfn en annað kom á daginn. Þá hófst skotsýning hjá gestunum sem minnkuðu muninn í 104-102 þegar um mínúta var eftir af leiknum. Boston fór í næstu sókn þar sem Paul Pierce setti niður tvö víti 106-102. Lakers fór í sókn og klúðraði henni og Boston fékk önnur tvö víti sem fóru ofaní og höfðu sigur 108-102.

Leikmenn Boston byrjuðu aðeins og snemma að fagna en liðið spilaði góðan körfubolta alveg þangað til í lokin en þá voru liðsmenn L.A. Lakers nánast einráðir á vellinum og ef leiktíminn hefið verið aðeins lengur hefðu þeir tekið sigurinn og farið sigurreifir til Los Angeles.

Kobe Bryant hefur átt í töluverðum vandræðum gegn hreyfanlegri Boston vörn sem margfaldar á hann við hvert tækifæri. Hann var með 30 stig en 13 þeirra komu í 4. leikhluta og sóknarleikur sem byggist á hröðum sendingum er frekar staður þegar Kobe á í vandræðum í sókninni.

Hjá Boston var leiðtogi þeirra Paul Pierce mjög öflugur og var með 28 stig og tví ísköld víti undir restina. Næstur honum var varamaðurinn Leon Power sem átti frábæra innkomu af bekknum og átti meðal annars tilþrif leiksins þegar hann brunaði upp völlinn og tróð með látum án þess að varnarmenn Lakers gátu eitthvað gert. Ray Allen og Kevin Garnett settu 17 stig.

Hjá Lakers var Kobe stigahæstur með 30 stig en átti erfitt uppdráttar stóran hluta af leiknum. Pau Gasol var með 17 stig og 10 fráköst en hóf leikinn af krafti og átti eina tröllatroðslu í andlitið á varnarmanni ársins Kevin Garnett.

Næsti leikur er á heimavelli Lakers á þriðjudagskvöld og hefst kl. 01:00.

[email protected]

Mynd: AP

Fréttir
- Auglýsing -