HomeFréttirBoston í 3-2 eftir sigur í Miami

Boston í 3-2 eftir sigur í Miami

Boston Celtics hafa nú unnið þrjá leiki í röð í úrslitaeinvígi sínu gegn Miami Heat á austurströnd NBA deildarinnar. Liðin mættust í fimmta leiknum í nótt þar sem Boston hafði betur 90-94 á heimavelli Miami. Chris Bosh snéri aftur í raðir Miami eftir nokkra fjarveru sökum meiðsla.

Kevin Garnett var atkvæðamestur í liði Boston með 26 stig og 11 fráköst. Paul Pierce bætti við 19 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum. Hjá Miami voru þeir James og Wade stigahæstir, LeBron James með 30 stig og 13 fráköst og Dwyane Wade gerði 27 stig og tók 6 fráköst. Chris Bosh lék rúmar 14 mínútur í leiknum, gerði 9 stig og tók 7 fráköst.

Annað kvöld mætast liðin að nýju og þá á heimavelli Boston þar sem þeir grænu og hvítu geta tryggt sér austurstrandartitilinn með sigri.

Mynd/ AP (Wilfredo Lee) – Kevin Garnett var stigahæstur Celtics-manna gegn Miami í nótt.  

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -