spot_img
HomeFréttirBorce: Hann hefur ákveðið að hætta

Borce: Hann hefur ákveðið að hætta

Karfan.is hafði samband við Borce Iliveski þjálfara ÍR og spurði hann lauslega út í þá flökkusögu að Oddur Rúnar Kristjánsson bakvörður ÍR væri mögulega á leiðinni frá klúbbnum. "Af einhverjum ástæðum vill hafa fara frá ÍR. Ég veit ekki afhverju en ég óska honum alls hins besta í framhaldinu." sagði Borce Iliveski þjálfari ÍR og staðfesti þar með að Oddur sé að yfirgefa Breiðhyltinga.

 

Oddur hefur gert rúmlega 18 stig í leik og sent rúmlega 3 stoðsendingar í leik fyrir ÍR í vetur.  Staðfesting þessi hlýtur að gefa þeirri sögu byr undir báða vængi að Oddur sé mögulega á leið til Njarðvíkinga sem sárlega hefur vantað stöðuleika í leikstjórnenda stöðuna.  

 

Ef af verður þá myndi hinsvegar hlutverk Odds breytast töluvert hjá Njarðvíkingum og myndi hann líkast til verða að aðlaga sig meira að leikstjórnanda hlutverkinu þar sem að fyrir eru miklir skorarar. 

 

Njarðvík verður 6. liðið sem Oddur spilar með síðan 2012 ef af þeim vistaskiptum verður en á þessum árum hefur Oddur leikið með Grindavík, ÍR, Breiðablik, Stjörnunni og svo KR. 

Fréttir
- Auglýsing -