HomeBónus deildinBónus deild karlaBónusdeild karla mætir aftur: Hvað lærðum við og hverju leitum við að...

Bónusdeild karla mætir aftur: Hvað lærðum við og hverju leitum við að í 2. umferð?

Fyrsta umferðin í Bónusdeild karla er að baki og þó að nokkrir dagar séu liðnir síðan flautað var til leiks hefur rykið svo sannarlega ekki sest. Upphafsleikirnir gáfu okkur strax tóninn fyrir það sem koma skal, nýjar stjörnur stigu fram á sjónarsviðið, vörnin gleymdist á köflum og nokkrar djarfar yfirlýsingar voru slegnar fram af fullum þunga.

En ein umferð gerir ekki heilt tímabil. Í kvöld hefst önnur umferð með heilum fjórum hörkuleikjum áður en henni lýkur svo með tveimur stórleikjum á morgun, föstudag. Þá fáum við fyrstu alvöru svörin við því hvort tilþrifin í fyrstu umferð hafi verið byrjendaheppni eða staðfesting á raunverulegum styrkleikum liðanna.

Lítum yfir hvaða lærdóm Kúlan dró af opnunarleikjunum – og hverju við leitum að þegar boltinn fer aftur á loft í Bónusdeildinni í kvöld og á morgun.

Í kvöld (fimmtudagur)

ÍR – Álftanes (kl. 19:15)

  • Punktar Kúlunnar eftir fyrstu umferð:
    • ÍR:
      • Kristján Fannar Ingólfsson, FG-ingurinn snjalli, fór mikinn! 5/5 í þristum, 21 stig, 27 í framlag. Hans tími er kominn.
      • Kevin Kone er frákastavél og ekki óhugsandi að hann sé hreinlega alinn upp í Breiðholtinu.
      • Halda ekki allir smá með ÍR og meistara Borche?
    • Álftanes:
      • Álftnesingar verða Íslandsmeistarar.
  • Spurningar fyrir leikinn:
    • Heldur Kristján Fannar áfram að raða niður þristum í Skógarselinu með sama sjálfstrausti?
    • Ræður framlína ÍR við Álftnesinga, eða mæta væntanlegir meistarar í Breiðholtið og sýna yfirburði sína?

Keflavík – Sindri (kl. 19:15)

  • Punktar Kúlunnar eftir fyrstu umferð:
    • Keflavík:
      • Fín byrjun hjá Sunny-KEF! Margir að setja í pokann.
      • Jamir Chaplin er nafn sem okkur er óhætt að læra strax.
      • EN…slaka alveg, Kef-City var að keppa við Ármann…
    • Sindri:
      • Þessi númer 77 hjá Sindra…?
      • Vörnin var AFLEIT þar til á síðustu mínútum leiksins.
      • Áfram landsbyggðin, bjargvættur þjóðarinnar. Kúlan er með Hlyni Bærings í liði, 9. sætið verður Sindra!
  • Spurningar fyrir leikinn:
    • Verður Jamir Chaplin jafn óstöðvandi gegn Sindra og eins og í opnunarleiknum?
    • Nær Sindri að mæta með þétta vörn í Skógarselið og sýna að 9. sætið sé raunhæft takmark?

KR – Njarðvík (kl. 19:15)

  • Punktar Kúlunnar eftir fyrstu umferð:
    • KR:
      • Djöfull lítur þetta vel út hjá Vesturbæjarstórveldinu!
      • Úr pistli um KR-Njarðvík 16.3.23:
      • Í eyrum hljómar angistarvein
      • eftir lifir vonin ei nein.
      • Frá örlögum kaupir sér enginn frí
      • en eflaust mun stórveldið rísa á ný.
      • KR-ingar eru meistarar meistaranna, stórveldið ER risið.
    • Njarðvík:
      • Hvar er Milka? Hvar er Super-Mario? Kúlan vill sjá töframanninn Baginski í búningi!
  • Spurningar fyrir leikinn:
    • Heldur vesturbæjarvélin áfram að mala andstæðinga sína á Meistaravöllum?
    • Sér Kúlan Baginski eða hina fjarverandi lykilmenn mæta í búningi til að spilla veislunni hjá KR?

Tindastóll – Ármann (kl. 19:15)

  • Punktar Kúlunnar eftir fyrstu umferð:
    • Tindastóll:
    • Hjá Stólum varetta alltílæ
    • stigunum köstuðu ekki á glæ.
    • Ekki er slæmt að eiga Búst
    • en ökklinn á Drunga er í rúst…
    • Ármann:
      • Ingvi Þór Guðmundsson er frábær leikmaður.
      • Lið Ármanns að öðru leyti? Neibb, lóðbeint niður eins og staðan er núna.
  • Spurningar fyrir leikinn:
    • Hvernig tekst Tindastóli að leysa verkefnið í Síkinu með ökkla Drunga laskaðan?
    • Getur Ingvi Þór Guðmundsson haldið Ármanni á floti gegn Stólunum og afsannað hrakspárnar?

Á morgun (föstudagur)

Stjarnan – Höttur (kl. 19:00)

  • Punktar Kúlunnar eftir fyrstu umferð:
    • Stjarnan:
      • Ægir er ekki kominn í takt enda að stíga upp úr meiðslum.
      • Orri Gunn…drífa sig! Garðabærinn fagri þarf á þér að halda.
      • Veit ekki með þá bræður -kis og -cic. Kúlan neitar að læra nöfnin á þeim strax.
    • Höttur:
      • Hattarmenn verða ekki Íslandsmeistarar.
  • Spurningar fyrir leikinn:
    • Nær Ægir Þór Steinarsson að finna taktinn á heimavelli í Ásgarði annað kvöld?
    • Ná leikmenn Stjörnunnar að heilla Kúluna, eða tekst Hattarmönnum að koma á óvart og svara fyrir sig?

Valur – Grindavík (kl. 19:30)

  • Punktar Kúlunnar eftir fyrstu umferð:
    • Valur:
      • Atli hinn ungi sló í gegn. Magnað að sjá drenginn spila. Vonandi verður þetta ekki hápunkturinn á hans ferli.
      • Útlitið annars ágætt hjá Finni Frey! Kaninn og Kristó bætast svo við, vonandi sem fyrst.
    • Grindavík:
      • Grindvísk byrjun hjá Grindavík, smá ves. Þeir geta þó huggað sig við þá staðreynd að þeir eru Íslandsmeistararnir!
      • Mortensen kemur fljótlega, Óli á nýju ári…
      • Herra DeAndre DONTE Kane er hins vegar utan þjónustusvæðis!
  • Spurningar fyrir leikinn:
    • Heldur Atli áfram að heilla á Hlíðarenda áður en herliðið bætist við hjá Finni Frey?
    • Ná Íslandsmeistarar Grindavíkur að sækja sigur í vinnubúningnum á meðan beðið er eftir lykilmönnum?
Fréttir
- Auglýsing -