Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Chicago, Charlotte og Portland höfðu öll sigra á heimavelli. Derrick Rose og félagar í Bulls færðu Dallas Mavericks sinn fimmta tapleik í röð á útivelli. Þá eru Charlotte Bobcats komnir í sæti á austurströndinni sem hleypir þeim í úrslitakeppnina en liðið hefur tekið stórstigum framförum undanfarið eftir brösuga byrjun.
Chicago 82-77 Dallas
Venju samkvæmt var ofurbakvörðurinn Derrick Rose stigahæstur hjá Bulls og í þetta sinn gerði kappinn 26 stig, gaf 9 stoðsendingar og tók 7 fráköst. Ekki fjarri þrennunni enda nýbúinn að landa sinni fyrstu þrennu á NBA ferlinum á dögunum. Þjóðverjinn Dirk Nowitzki var stigahæstur í liði Dallas með 19 stig.
Charlotte 100-97 Philadelphia
Dj Augustin gerði 31 stig og gaf 8 stoðsendingar fyrir Bobcats en hjá 76ers var Thaddeus Young með 21 stig og 6 fráköst af bekknum.
Portland 108-93 Clippers
Bæði lið höfðu unnið þrjá leiki í röð fyrir viðureign kvöldsins. Blake Griffin komst aftur á tvennusporið í liði Clippers með 20 stig og 18 fráköst en stigahæstur var Eric Gordon með 35 stig og 5 fráköst. Tveir voru jafnir og stigahæstir í liði Portland en það voru þeir LaMarcus Aldridge og Wesley Matthews báðir með 28 stig.
Ef blásið yrði til úrslitakeppninnar í NBA í dag myndu þessi 8 lið af austur- og vesturströndinni skipa fyrstu umferðina:
Austurströndin
Boston
Miami
Chicago
Atlanta
Orlando
New York
Charlotte
Indiana
Vesturströndin
San Antonio
Lakers
Oklahoma
Dallas
Utah
New Orleans
Denver
Portland
Mynd/ Dj Augustin fór mikinn í liði Bobcats í nótt en piltarnir hans Jordans hafa tekið verulega við sér síðustu vikur.




