Hamarsmenn tóku á móti Breiðablik í 1. deild karla í kvöld í leik sem þjónaði litlum tilgangi öðrum en að slípa bæði lið fyrir úrslitakeppnina.
Frá fyrstu mínútu tóku gestirnir forystuna og héldu áfram að breikka bilið milli liðanna alveg fram í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var í nánast óþrafur og bróðurpartur fjórða leikhlutans varð að rusltíma. Breiðablik kláraði leikinn, allir leikmenn þeirra skoruðu og lokastaðan 78-100, Breiðablik í vil.
Þáttaskil:
Leikurinn var eiginlega aldrei í hættu en þáttaskil urðu í byrjun fjórða leikhluta þegar að Oddur Ólafsson í Hamri fékk nóg af flautufeimni dómara og missti aðeins skapið. Á innan við mínútu fékk hann tæknivillu fyrir leikaraskap og síðan óíþróttamannslega villu þegar hann veittist að þriggja stiga leyniskyttu Breiðabliks, Kjartani Atla Kjartanssyni, strax eftir þriggja stiga skot. Þjálfari Hamars skipti Oddi út af og restin af leiknum var í raun bara ruslamínútur.
Tölfræðin lýgur ekki:
Breiðablik hitti miklu betur í þessum leik, þeir settu 24 af 37 (65%) á móti 18 af 50 (36%) hjá Hamri í tveggja stiga skotum og gestirnir hittu úr 15 af 38 (39%) í þristum á móti 11 af 29 (38%) hjá Hamri. Skotnýting Blika á heildina var miklu betri en hjá heimamönnum (52% úr skotum utan af velli versus 37% hjá Hamri). Þrátt fyrir að Hamarsmenn tóku margfalt fleiri sóknarfráköst (18 á móti 5) þá gátu þeir ekki klárað skotin þrátt fyrir tvö og stundum þrjú tækifæri í sömu sókn.
Hetjan:
Liðsvörn Breiðabliks í þessum leik var á köflum alveg frábær og dugði til að takmarka Christopher Woods í aðeins 14 stig sem reyndist heimamönnum mjög dýrkeypt, en Woods hefur aldrei skorað svona fá stig á þessu tímabili (skoraði 15 stig á móti Hetti í byrjun tímabilsins). Þó ber líka að minnast á Tyrone Garland hjá Breiðablik, en hann átti annan góðan leik í kvöld og endaði með 33 stig, 6 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 stolna bolta (32 í framlag).
Kjarninn:
Breiðabliks strákarnir eru komnir á skrið og hafa átt nokkra góða leiki í röð undanfarið. Ef þeir halda uppteknum hætti ættu þeir að eiga góðan séns á að vinna úrslitakeppni 1. deildar karla. Hamarsmenn áttu erfitt með stóra menn Blika í kvöld og þurfa að geta treyst meira á aukaleikara sína þegar stjarna liðsins á slakt kvöld. Þeir þurfa að fara inn í úrslitakeppnina með allavega einn sigur í farteskinu til að finnast þeir eiga heima þar. Verst að næstu tveir leikir hjá þeim eru gegn liðum sem geta unnið þá.
Hamar: Erlendur Ágúst Stefánsson 20 stig (5/11 í þristum), Christopher Woods 14 stig/13 fráköst, Örn Sigurðarson 14 stig, Hilmar Pétursson 11 stig, Rúnar Ingi Erlingsson 9 stig, Guðjón Ágúst Guðjónsson 4 stig, Oddur Ólafsson 3 stig/5 stoðsendingar, Smári Hrafnsson 3 stig, Kristinn Ólafsson 0 stig, Björn Ásgeir Ásgeirsson 0 stig, Bjarki Friðgeirsson 0 stig, Arvydas Diciunas 0 stig.
Breiðablik: Tyrone Garland 33 stig/3 stolnir boltar, Snorri Vignisson 14 stig, Ragnar Jósef Ragnarsson 11 stig, Kjartan Atli Kjartansson 8 stig/3 stolnir boltar, Birkir Víðisson 8 stig, Sveinbjörn Jóhannesson 5 stig, Matthías Örn Karelsson 5 stig, Leifur Steinn Árnason 4 stig, Atli Örn Gunnarsson 4 stig, Þröstur Kristinsson 4 stig, Egill Vignisson 2 stig/8 fráköst, Bjarni Geir Gunnarsson 2 stig.
Umfjöllun / Helgi Hrafn Ólafsson




