10:20
{mosimage}
(Flake með Blikum gegn Njarðvík í Ljónagryfjunni á dögunum)
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur ákveðið að segja upp samningum sínum við erlendu leikmennina Darrell Flake og Igor Beljanski. Blikar hafa sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu um málið:
Erlendir leikmenn á heimleið
Eins og öllum landsmönnum er kunnugt rær nú íslenskt fjármálakerfi og efnahagslíf lífróður. Við slíkt efnahagslegt umrót er nauðsynlegt að endurskoða allar áætlanir og fjárhagslegar skuldbindingar. Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur verið rekin á undanförnum árum af ábyrgð og gert raunhæfar áætlanir sem hafa staðist. Vegna núverandi aðstæðna er með öllu óraunhæft að standa við gerða samninga við erlenda leikmenn. Jafnframt verða öll önnur útgjöld rækilega endurskoðuð.
Samningum við erlenda leikmenn sagt upp
Í ljósi aðstæðna sér körfuknattleiksdeildin ekki annað fært en að segja upp samningum við erlenda leikmenn liðsins, Darrell Flake og Igor Beljanski og munu þeir hætta með liðinu strax. Báðum er þeim þakkað framlag sitt til liðsins en þeir féllu mjög vel inn í liðið og hópinn sem gerir þessa ákvörðun enn erfiðari. Ekki má þó gleymast að liðið hefur á að skipa góðum íslenskum leikmönnum sem skilja vel stöðu mála og munu bera uppi leik liðsins í vetur. Það kemur alltaf maður í manns stað.
Brugðist við af festu
Það er einróma mat stjórnar körfuknattleiksdeildarinnar að bregðast strax við og af ábyrgð til að tryggja öflugt og blómlegt starf deildarinnar til framtíðar.
Nánari upplýsingar veitir:
Pétur Hrafn Sigurðsson,
formaður körfuknattleiksdeildar Breiðabliks
gsm. 897-0714