HomeFréttirBlikar óska eftir þjálfurum

Blikar óska eftir þjálfurum

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks óskar eftir yngri flokka þjálfurum til starfa tímabilið 2012-2013 en um er að ræða nokkrar stöður. Óskað er eftir því að umsækjendur nefni þá hópa sem þeir sækja um og markmið/áherslur þeirra í æfingum viðkomandi hópa. Vinsamlega sendið upplýsingar um menntun og fyrri störf. Umsóknir skal senda á netfangið [email protected]
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 28. júní.
 
Fyrir hönd unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Breiðabliks,
Gunnhildur Erna Theodórsdóttir
  
Fréttir
- Auglýsing -