spot_img
HomeFréttirBjörn Steinar á bekkinn með Jóhanni

Björn Steinar á bekkinn með Jóhanni

Björn Steinar Brynjólfsson verður næsti aðstoðarmaður Jóhanns Ólafssonar hjá karlaliði Grindavíkur í Domino´s-deild karla. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Grindavíkur nú í kvöld. Björn Steinar smokrar sér í sætið sem Guðmundur Bragason gaf frá sér á dögunum. 

Hér að neðan má sjá tilkynninguna sem KKD Grindavíkur birti á Facebook í kvöld:

Eins og þið hafið kannski tekið eftir er komið nýtt, þekkt andlit á bekkinn hjá karlaliðinu en það er okkar eini sanni Björn Steinar. Eftir að Gummi Braga þurfti að gefa þetta frá sér var það í höndum Jóhanns að velja mann sér til aðstoðar. Jóhann leitaði til Björns Steinars sem þáði boðið og er eins og áður segir tekinn til starfa. Það vita það allir að Björn Steinar hefur spilað lengi með okkur auk þess að hafa þjálfað yngri flokka hjá félaginu og því er frábært að fá hann á fullu gasi inni klúbbinn aftur. Hann þekkir vel til okkar og strákanna í liðinu og væntum við mikils af samstarfi þeirra félaga. Verkið fyrir framan þá er stórt því metnaðurinn er mikill og enginn afsláttur gefinn þar. Við bjóðum Björn Steinar innilega velkominn starfa.

Stjórn KKD UMFG

Mynd úr safni/ Björn Steinar til varnar í leik gegn Þór Þorlákshöfn.

Fréttir
- Auglýsing -