HomeFréttirBjörgvin Hafþór Ríkharðsson kann að búa til plakat

Björgvin Hafþór Ríkharðsson kann að búa til plakat

Fjölnismenn kvöddu keppni í Iceland Express deild karla í gærkvöldi eftir 98-99 ósigur gegn Keflavík í framlengdum spennuslag. Björgvin Hafþór Ríkharðsson bjó til plakat þegar Charles Parker ætlaði eitthvað að þvælast fyrir honum. Hér að neðan fer klippa frá meisturunum í Fjölnir TV.
Björgvin kom svona bakdyramegin inn í Fjölnisliðið þetta tímabilið og fékk stóra tækifærið þegar þungavigtarkappinn Árni Ragnarsson meiddist og Björgvin nýtti tækifærið til hins ítrasta og skipaði sér á meðal fremstu manna Fjölnis og kláraði leiktíðina í gærkvöldi með miklum sóma og frábærum leik gegn Keflavík. Hér er leikmaður á ferðinni sem ber að taka alvarlega eins og Charles Parker hefur lært svo leggið nafnið á minnið!
 
 
Fréttir
- Auglýsing -