HomeBónus deildinBónus deild karlaBjóða ráðamönnum á undanúrslitin

Bjóða ráðamönnum á undanúrslitin

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur sent frá sér formlegt boð til þingmanna, ráðherra og annarra fulltrúa stjórnvalda sem sækja íbúafund í bænum þann 22. apríl næstkomandi. Boðið er í tilefni af fyrsta leik liðsins í fjögurra liða úrslitum Bónusdeildar karla, en leikurinn hefst klukkan 19:15. Dagskráin byrjar í svokölluðu „FanZone“ þar sem boðið verður upp á veitingar áður en flautað verður til leiks.

Aðstandendur deildarinnar segjast hlakka til að taka á móti gestunum og sýna þeim þá einstöku stemningu og samfélagsanda sem ríkir í Grindavík þegar húsið fyllist af gleði. Með boðinu vill félagið gefa ráðamönnum tækifæri á að upplifa kraftinn í íþróttastarfinu af eigin raun beint í kjölfar íbúafundarins.

Fréttir
- Auglýsing -