BJ Spencer er bakvörður sem kemur til með að spila með KFÍ í vetur í Dominosdeildinni. BJ er 28 ára gamall bakvörður sem útskrifaðist út Jacksonville háskólanum í Alabama. Þetta mun verða hann 6. tímabil sem atvinnumaður.
"Ég er hef verið í körfubolta frá því ég man eftir mér og vona að ég geti verið í íþróttinni eins lengi og hægt er, jafnvel eftir að ég hætti að spila." sagði BJ Spencer við Karfan.is
"Ég er spenntur að hefja nýjan kafla í körfuboltanum hjá mér og þakklátur fyrir tækifærið. Ég hef heyrt að íslenska deildin sé "deild bakvarða" og flestir sem ég hef spurt út í deildina gefa henni góða einkunn. Ég kem með reynslu og leiðtogahæfileika til KFÍ. Ég ætla mér að reyna að vera fyrirmynd og ekki myndi skemma fyrir að vinna titil í Evrópu og bæta því á ferilskránna." sagði Spencer
Líkt og aðrir leikmenn er von á Spencer í september en hverjir eru hans helstu hæfileikar.
"Ég er fjölhæfur leikmaður og get sitt lítið af öllu á vellinum. Ég er líkast til best þekktur fyrir skothæfileikana og ég held ég muni spila mikið sem leikstjórnandi í vetur. Vonandi verður þetta gott tímabil fyrir KFÍ og við munum enda á toppnum með gullið." sagði Spencer í lokin.





