spot_img
HomeBikarkeppniBikarstóllinn - Tindastóll hitar upp fyrir undanúrslitin með frábæru bikarblaði

Bikarstóllinn – Tindastóll hitar upp fyrir undanúrslitin með frábæru bikarblaði

Tindastóll er þetta árið eitt tveggja liða sem bæði er með lið í undanúrslitum karla- og kvenna. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem Tindastóll nær þessum góða árangri, en eftir uppgang karlaliðs þeirra síðustu fimmtán árin, hefur kvennalið þeirra einnig verið að gera gott mót á síðustu árum.

Við tilefnið hefur félagið gefið út glæsilegt bikarblað, en það er aðgengilegt hér fyrir neðan. Í því er að finna ávarp formanns, viðtöl við leikmenn og þjálfara, fréttir frá deildinni og margt fleira.

Hérna er bikarblað Tindastóls

Karlalið Tindastóls ríður á vaðið í kvöld kl. 20:00 með undanúrslitaviðureign sinni gegn KR, en á morgun leikur kvennalið þeirra gegn Grindavík á sama tíma.

Fréttir
- Auglýsing -