HomeFréttirBikarspá: Tómas Holton

Bikarspá: Tómas Holton

Veit Tómas lengra en nef hans nær? Tómas Albert Holton tippar á að Njarðvíkurkonur og Keflavíkurkarlar taki bikarinn í ár en bikarúrslit fara fram í Laugardalshöll á morgun og eru það konurnar sem ríða á vaðið kl. 13:30.
 
Kvennaleikurinn?
Njarðvík-Snæfell?
 
-Hvernig spilast þessi?
Þrátt fyrir að Njarðvík hafi nýlega unnið 20 stiga sigur í Hólminum held ég að þetta verði jafn leikur. Ingi er vanur að undirbúa Snæfell fyrir stórleiki eins og sást best þegar karlaliðið vann eftirminnilegan sigur í oddaleiknum í Keflavík hérna um árið. Njarðvík er stóra liðið í þessum leik og það væru mikil vonbrigði fyrir þær að tapa. Því má segja að pressan sé meiri þeim megin. Snæfell verður þó að mæta með “rétt lið” til að eiga möguleika, en þeir hafa fengið rassskellingu öðru hvoru í vetur.
 
?-Hver mun stíga upp og baka sér myndarlega bikarminningu?
Kanarnir verða í aðalhlutverki eins og venjulega, en ef við reiknum með að þessir atvinnumenn standi sig vel, getur verið að 3.stiga hittnin hjá íslensku leikmönnunum geti skipt miklu máli. Þar gæti auðveldlega fæðst hetja í öðru hvoru liðinu.
 
?-Hver verður bikarmeistari?
Njarðvík vinnur 70-69. Baker-Brice virðist vera í banastuði þessa dagana. Hún á eftir að sjá um þetta í lokin.??
 
Karlaleikurinn
Tindastóll-Keflavík
 
?-Hvernig spilast þessi?
Það fer alveg eftir því hvort Tindastólsliðið mætir. Liðið sem mætti í Dalhúsin um daginn verður búið að tapa í fyrri hálfleik. Ég hef þó meiri trú á að Bárður verði með þá í réttum gír, enda með mikla reynslu í bikarúrslitum.
Mikilvægustu leikmennirnir hjá liðunum verða Cole hjá Keflavík, en Tindastóll hefur e.t.v. engan sem getur dekkað hann. Hjá Tindastóli verður Miller lykilmaður. Hann þarf að halda uppi hraðanum í leiknum og nýta sér að hann sé að spila gegn 17 ára leikstjórnanda, sem verður þó ekki auðvelt því Valur er búinn að vera frábær í vetur þó hann skori sjaldan mikið.
 
Hver mun stíga upp og baka sér myndarlega bikarminningu ?
Það er gaman að sjá að Íslendingarnir í liðunum eru langflestir heimamenn. Einn af þessum strákum gæti náð sér í bikarminningu sem endist þeim út lífið.
 
?-Hver verður bikarmeistari??
Keflavík vinnur með einu stigi í háspennuleik, 89-88. Þegar allir verða farnir á taugum setur Maggi Gunn flautuþrist eftir að hafa klikkað úr tíu í röð.
  
Fréttir
- Auglýsing -