HomeFréttirBikarspá: Ólafur Jónas

Bikarspá: Ólafur Jónas

Danaveldi fékk stoðsendingu frá Íslandi hér um árið þegar Ólafur Jónas Sigurðsson hélt ytra. Ólafur leikur nú með Aabyhoj í Danmörku en við fengum hann til þess að rýna í bikarúrslitaleikina sem fram fara í Laugardalshöll í dag.
 
Kvennaleikurinn
Njarðvík-Snæfell
 
-Hvernig spilast þessi?
Þetta verður virkilega spennandi leikur þar sem úrslitin munu ekki ráðast fyrr en á síðustu sekúndunni. Liðin munu skiptast á um að skora allan leikinn.
 
-Hver mun stíga upp og baka sér myndarlega bikarminningu?
Ég hef trú á því að Hildur muni eiga stórleik og fara ansi langt á reynslunni í þessum leik.
 
-Hver verður bikarmeistari?
Ég ætla að skjóta á að það verði Snæfell sem fer með sigur af hólmi 67-65
 
Karlaleikurinn
Tindastóll-Keflavík
 
-Hvernig spilast þessi?
Ég er ansi hræddur um að leikurinn verði jafn framan af leik en svo munu Keflvíkingar síga framúr í þriðja leikhluta og koma til með að halda 10-15 stiga forskoti. Tindastólsmenn hafa samt sem áður verið á góðri siglingu undanfarið og ef þeir ná að halda leiknum nokkuð jöfnum þangað til í fjórða leikhluta getur allt gerst.
 
-Hver mun stíga upp og baka sér myndarlega bikarminningu?
Maggi Gunn á eftir að vera sjóðandi heitur í þessum leik, hann er yfirleitt alltaf góður í svona leikjum. Ég spái því að hann setji 10 þrista í leiknum.
 
-Hver verður bikarmeistari?
Ég held að Keflavík vinni þetta en vona að Tindastóll vinni. Ég held að það sé ekkert nema gott fyrir körfuboltann að fá dolluna eitthvað annað en á Suðurnesin. 
Fréttir
- Auglýsing -