Röðin er komin að leikjahæsta leikmanni úrvalsdeildar karla frá upphafi. Marel Örn Guðlaugsson fer nú í spámannsbrækurnar. Sjáum hvað reynsluboltinn hefur í kristalskúlu sinni.
Kvennaleikurinn
Njarðvík-Snæfell
-Hvernig spilast þessi?
Svona fyrirfram má búast við að Njarðvík sé sterkari aðilinn og fari með sigur af hólmi. Kanarnir hjá Njarðvík hafa verið að spila jafnt og vel í vetur og koma örugglega til með að gera það í þessum leik. Spurning hvaða framlag Njarðvík fær frá öðrum leikmönnum, sem hafa minni reynslu. Snæfell er með er með nokkra reynslubolta, eins og Hildi Sig. og Öldu, þær kunna ýmislegt fyrir sér sem þær geta nýtt á móti ungu stelpunum úr Njarðvík. Síðan geta þjálfararnir Ingi og Sverrir líka kokkað fram ýmsa galdra sem getur skipt sköpum í þessum leik.
-Hver mun stíga upp og baka sér myndarlega bikarminningu?
Ég geri ráð fyrir að kanarnir í Njarðvík skili sínu meðaltali í vetur og verði því áberandi í öllum tölfræðiþáttum. Á líka von á að "Grindvíkingarnir" þrír verði áberandi, þ.e. Petrúnella, Ólöf Helga og Harpa, þær munu bæta við þessu sem þarf til þess að landa titlinum. Hjá Snæfelli verður svipað uppi á teningnum, þ.e. útlendingarnir áberandi í tölfræðinni, ásamt Hildi Sig., Hildi Björgu og Öldu
-Hver verður bikarmeistari?
Ég reikna þó með að Njarðvík vinni í nokkuð jöfnum leik.
Karlaleikurinn
Tindastóll-Keflavík
-Hvernig spilast þessi?
Ég reikna með að Keflavík taki snemma forystuna í þessum leik. Keflavík þekkir þessa stöðu vel að leika stóra úrslitaleiki fyrir fullu húsi. Siggi kemur til með að ná því besta út úr Keflavíkurliðinu, eins og hann hefur gert svo oft áður. Það má búast við að þessi leikur verði spilaður nokkuð fast, en vonandi kemur það ekki niður á gæðum leiksins. Tindastóll eru hungraðir í að landa sínum fyrsta bikarmeistaratitli (hafa að vísu unnið fyrirtækjabikarinn eitt árið ef ég man rétt, en aldrei þennan stóra). Þeir mega þó ekki koma yfirspenntir í leikinn, ef Bárður nær að stýra spennustiginu rétt, þá er aldrei að vita nema að stemmningin lendi hjá þeim.
-Hver mun stíga upp og baka sér myndarlega bikarminningu?
Maggi Gunn mun vera upp á sitt besta, það er enginn Emil Barja að dekka hann í þessum leik. Það væri líka gaman að sjá einhverja Íslendingana í Tindastóli stela senunni, eins og Svavar, Þröst, Helga eða Frikka.
-Hver verður bikarmeistari?
Keflavík klárar þetta, þó ég voni að Tindastóll geti staðið vel í þeim og strítt þeim.



