Stjörnumenn og ÍR-ingar mættust öðru sinni á parketinu á skömmum tíma í kvöld þegar Breiðhyltingar mættu í Ásgarð í 32-liða úrslitum Powerade-bikarsins. Síðast mættust liðin á fimmtudaginn í Domino’s deildinni þar sem ÍR-ingar höfðu betur í hörkuleik. Leikurinn í kvöld fer hins vegar seint í sögubækurnar fyrir spennu eða jafnræði, en Stjörnumenn hreinlega völtuðu yfir gesti sína úr Breiðholti og unnu að lokum 27 stiga sigur, 93-66.
ÍR-ingar byrjuðu leikinn af krafti og eftir aðeins þrjár leiknar mínútur voru þeir komnir í skotrétt. Stjörnumenn fundu ekki taktinn á fyrstu mínútunum, en um miðbik fyrsta leikhluta small einhvern veginn allt hjá þeim í vörn og sókn og litu þeir varla um öxl það sem eftir lifði leiks. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 30-19 heimamönnum í vil, þar sem Zo Coleman var stigahæstur heimamanna með 8 stig.
ÍR-ingar lentu í miklum vandræðum í öðrum leikhluta, þar sem heilir fimm leikmenn liðsins voru komnir með þrjár villur undir lok fyrri hálfleiks. Stjörnumenn nýttu sér það heldur betur og virtust hreinlega ætla að valta yfir gestina. Allir leikmenn Garðbæinga skiluðu framlagi og liðið spilaði talsvert betur en það hefur gert hingað til á tímabilinu. Eftir flautusniðskot frá Ágústi Angantýssyni höfðu Garðbæingar 23 stiga forskot í hálfleik, 59-36.
Seinni hálfleikur byrjaði ekki vel fyrir gestina því fljótlega nældi Sveinbjörn Claessen sér í sína fjórðu villu. ÍR-ingar voru algerlega heillum horfnir og þegar 4 mínútur voru eftir af þriðja leikhluta höfðu þeir aðeins bætt sex stigum á töfluna og komust Garðbæingar í 31 stigs forystu, 73-42. Fyrir lokaleikhlutann höfðu Stjörnumenn 27 stiga forskot, 78-51, og því lítil spenna í kortunum.
Stjörnumenn kláruðu verkið í lokaleikhlutanum, sem verður seint talinn meðal listaverka parketsins. Bæði lið gáfu ungum leikmönnum tækifæri og að lokum höfðu Stjörnumenn afar þægilegan 93-76 sigur og fara bikarmeistararnir því í 16-liða úrslit. Eftir frábæran sigur í viðureign liðanna í Seljaskóla síðasta fimmtudag mættu ÍR-ingar einfaldlega ekki til leiks í kvöld og var refsað grimmilega fyrir það. Stjörnumenn, sem hafa ekki alltaf verið sannfærandi hingað til á tímabilinu, sýndu hins vegar afar flottan leik og hreinlega völtuðu yfir gestina á tímabili. Al’lonzo Coleman var stigahæstur Stjörnumanna í kvöld með 23 stig, en hjá ÍR var Oddur Rúnar stigahæstur með 11 stig.
Myndasafn – Bára Dröfn
Tölfræði leiksins
Umfjöllun/ Elías Karl Guðmundsson