HomeBónus deildinBónus deild karlaBíða enn eftir týnda syninum

Bíða enn eftir týnda syninum

Íslandsmeistarar Grindavíkur máttu þola tap gegn KR í fyrstu umferð Bónus-deildarinnar í gærkvöldi, án lykilmannsins DeAndre Kane innan sinna raða.

Kane er enn ókominn til landsins og ríkir óvissa um hvenær hann mætir á svæðið, líkt og vefmiðillinn Vísir greindi frá í frétt sinni: „Reikna með Kane en vita ekki hvenær“.  

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga, staðfesti við Vísi að unnið væri í málum Bandaríkjamannsins. Eftir að hafa ekki náð sambandi við Kane fyrr í vikunni er nú gert ráð fyrir að hann spili með liðinu í vetur, en hvenær hann lendir á klakanum er óráðið.  

Fjarvera Kane vegur þungt, sérstaklega í ljósi meiðslaöldu sem herjar á meistarana. Þótt Jeremy Pargo og Unnsteinn Rúnar Kárason hafi klæðst búningi í gær eru Daniel Mortensen og Ólafur Ólafsson á meiðslalistanum, og gæti sá síðarnefndi misst af öllu haustinu fram að áramótum. Grindavík þarf því sárlega á sínum sterkasta manni að halda sem allra fyrst.

Fréttir
- Auglýsing -