Við höldum áfram að birta sterkustu 5 manna uppstillingu liðana í Dominosdeildinni og að þessu sinni er komið að Tindastól. Tindastóll hefur verið á barmi þess að næla í þann stóra og ekki þarf að fletta lengra en síðasta úrslita einvígi sem þeir Skagfirðingar öttu kappi við KR en þurftu að lúta í parket. Mörg allra stærstu nöfn boltans hafa spilað með þeim Sauðkrækingum og meira segja stærsta nafnið kom lítið við sögu fyrir þá því hann valdi það að sparka bolta frekar en að rekja hann.
Aðferðin sem við sættumst á að nota var að tala við 10-15 stuðningsmenn hvers liðs og passað var upp á að hafa þá öllum aldri þannig að hver kynslóð hefði sitt val. Álitsgjafar eru reglulegir gestir á leikjum liðanna og eða "innan hús" menn sem þekkja vel til sem velja sitt byrjunarlið, þjálfara og sjötta leikmann. Með þessu vali létu stuðningsmennirnir svo fylgja smá texta fyrir hvern leikmann sem við svo klipptum niður og settum með.
Næstir í röðinni eru menn Tindastóls.
Flestir af þeim eru fyrrverandi leikmenn, en tveir núverandi leikmenn komust á listann. Liðið er samsett úr bæði heimamönnum, sem og rjóma þeirra fjölmörgu leikmanna sem flutt hafa norðan heiða til þess að spila í gegnum tíðina.
Okkar skoðun (Karfan.is) er engin og við tökum okkur hliðarsæti í þessu titekna verkefni. Við tökum aðeins saman þau atkvæði sem við fengum sem í flestum tilvikum voru frekar afgerandi fyrir þá sem um ræðir hér.
Tindastóll
Stofnað: 1954
Leikir innan liðs: 1708
Landsleikir innan liðs: 273
Leikstjórnandi: Páll Kolbeinsson
Mynd:mbl
Leikir: 236
Landsleikir: 43
Tölfræðimoli: Þann 8. mars 1992 gaf Páll 17 stoðsendingar í leik gegn Njarðvík.
Ekki aðeins stjórnaði Páll leikmönnum sínum eins og herforingi, heldur var hann einnig þess megnugur að spila fantavörn þegar hann var upp á sitt besta. Eyddi mörgum af sínum bestu árum hjá Tindastól, þar sem hann bæði spilaði og þjálfaði. Þekktur fyrir eitt hraðasta “cross-over” í manna minnum, sem oftar en ekki setti varnarmenn á rassinn.
Hvað sögðu álitsgjafarnir:
“Með drápseðli”
“Snjall leikstjórnandi með óbilandi leikskilning”
“Eitt eitraðasta “crossover” í íslenskum körfubolta og setti Palli ófáa mennina á skauta”
“Frábær leikstjórnandi”
“Sneggsta cross-over sögunnar”
“Mikill leiðtogi”
“Frábært auga fyrir sendingum”
“Einn allra skemmtilegasti bakvörðurinn sem leikið hefur í íslenskum körfubolta”
“Gríðarlega hraður”
“Góður varnarmaður”
Skotbakvörður: Kristinn Friðriksson
Mynd: Dv
Leikir: 317
Landsleikir: 13
Tölfræðimoli: Kristinn skoraði 11 þrista í leik gegn ÍA þann 1.desember 1994.
Leikmaður sem flestir, ef ekki allir, stuðningsmenn Tindastóls muna vel eftir. Þriggjastiga skytta af guðs náð sem þurfti í raun og veru bara að vera kominn yfir miðju til þess að vera farinn að fá varnarmann sinn til þess að skjálfa. Skoraði 226 þrista í 106 leikjum sínum fyrir Tindastól.
Hvað sögðu álitsgjafarnir:
“Einn mesti töffari og sigurvegari sem hefur reimað á sig körfuboltaskó og spilað fyrir heimamenn í Síkinu”
“Ekki bara byssa af guðs náð heldur hafði hann hreyfingar á við suðræna tangó dansara og fór oft illa með stóru strákana inní teig”
“Lykilmaður í liðinu um aldarmótin”
“Sigurvegari”
“Ef þú vilt fá orðskýringu á orðinu „Basketball IQ“ þá mun mjög líklega nafn hans Kidda vera þar”
“Ógn um leið og hann steig yfir miðjuínuna”
“Gat snúið leikjum”
“Toppmaður”
“Gleymi aldrei skotstílnum hans”
“Algjörlega magnaður leikmaður og skemmtilegur karakter”
“LEGEND!”
“Leikmaður með 673 skoraðar þriggja stiga körfur í efstu deild er alltaf í liðinu mínu”
“Sleipur undir körfunni”
“Kemur inná til að klára leiki, stundum með skoti frá miðjum vellinum. Ekkert vesen.”
Framherji: Valur Ingimundarson
Mynd: þjóðviljinn
Leikir: 400
Landsleikir: 164
Tölfræðimoli: 16. október 1988 skoraði Valur 54 stig í leik gegn Haukum.
Val Ingimundarson þarf vart að kynna. Keppnismaður á báðum endum vallarins, sem óvíst er að deildin í heild eigi nokkurntíman eftir að fá aðra útgáfu af. Leikmaðurinn sem fékk flest atkvæði í þessari könnun. Ekki skrýtið kannski þar sem að hann leiðir Tindastól enn í mörgum tölfræðiþáttum. Er efstur í stigum, efstur í fráköstum, annar í stoðsendingum og sá þriðji í stolnum boltum þrátt fyrir að vera aðeins fjórði leikjahæsti leikmaður þeirra frá upphafi.
Hvað sögðu álitsgjafarnir:
“Leiðir enn helstu tölfræðiþætti leiksins í sögu félagsins”
“Efalaust besti leikmaður Tindatóls”
“Sjálfstraust er orð sem lýsir Val best”
“Maður heyrt endalaust af sögum af honum í gegnum tíðina”
“Frábær leikmaður og þjálfari”
“Stigamaskína og mikill leiðtogi á velli”
“Með sjálfstraustið í botni gat enginn stoppað hann”
“Þvílíkur sigurvegari”
“Gríðarlega fjölhæfur”
“Erfitt að ráða við þessa útgáfu af leikmanni, hávaxin skytta”
“Gat skorað nánast að vild”
“Einn besti körfuboltamaður sem Ísland hefur alið fyrr og síðar”
Framherji: Helgi Rafn Viggósson
Mynd: Karfan
Leikir: 298
Tölfræðimoli: Þann 23. janúar 2003 tók Helgi 22 fráköst í leik gegn Skallagrím.
Helgi er hinn leikmaðurinn sem enn spilar og fékk kosningu í þetta lið. Af einhverjum álitinn Herra Tindastóll. Ódeyjandi baráttugleði og keppnisskap einkennir leik hans.
Hvað sögðu álitsgjafarnir:
“Eljuseminn og baráttan í manninum af bestu sort”
“Hefur styrk á við bjarndýr”
“Gefur sig aldrei”
“Alltaf á fullu skiptir engu máli hvernig leikurinn hefur þróast”
“Rífur lið sitt áfram”
“Frábær fyrirliði”
“Stærsta Tindastólshjarta sem til er”
“Kraftur og vilji”
“Af Fagranesættinni”
“Magnaður leikmaður og einstaklingur”
“Frábær fyrirmynd”
“Mesti baráttujaxl sem hefur spilað með Tindastólsliðinu”
“Herra Tindastóll”
“Baráttuhundur, frábær varnarmaður og frákastari”
“Gríðarlega sterkur og frábær leiðtogi”
“Bætir skort á tækni með gríðarlegum vilja og baráttu”
Miðherji: Pétur Guðmundsson
Mynd: Dagblaðið Vísir
Leikir: 82
Landsleikir: 53
Tölfræðimoli: Pétur var með 20 stig og 13 fráköst aðmeðaltali í leik þau tvö tímabil sem hann spilaði fyrir Tindastól.
Pétur Guðmundsson þarf varla að kynna fyrir neinum og alveg örugglega ekki þeim aðdáendum Tindastóls sem muna eftir þeim tímabilum sem hann skilaði til félagssins. Með 20 stigum og 13 fráköstum eyddi Pétur ævikvöldi farsæls ferils síns, sem meðal annars innihélt leiki fyrir Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs, fyrir norðan. Pétur var kosinn körfuknattleiksmaður tuttugustu aldarinnar, sem og tekinn inn í frægðarhöll ÍSÍ.
Hvað sögðu álitsgjafarnir:
“Er einn sá besti ef ekki sá besti körfuboltamaður sem Ísland hefur alið”
“Gat nánast gert það sem hann langaði til inní teignum”
“Allir þeir leikir sem hann spilaði unnust”
“LA Lakers, Spurs, Tindastóll. Rökrétt framhald á flottum ferli”
“Einn besti ef ekki besti körfuboltamaður okkar íslendinga”
“Menn áttu í vandræðum með hæð hans og erfitt var að stoppa hann”
“Besti körfuboltamaður Íslands”
“Margra ára ferill í NBA segir sitt”
“Átti mikinn þátt í velgegni Tindastóls í upphafi 10. áratugsins”
“Ekki bara stór”
Sjötti Maður: Svavar Atli Birgisson
Mynd: Karfan
Leikir: 342
Tölfræðimoli: Þann 3. mars 2005 setti Svavar 8/11 þrista niður í leik gegn Snæfell.
Svavar er annar tveggja leikmanna sem ennþá spila sem komast í þetta lið. Svakalegur sóknarmaður sem getur hitnað upp á skotstundu og líkt og með Kristinn hér að ofan, þá skiptir það litlu máli hvaða vörnum er beitt á hann. Fjórði stigahæsti leikmaður félagssins frá upphafi og sá fimmti frákastahæsti.
Hvað sögðu álitsgjafarnir:
“Verið lykilmaður frá unga aldri”
“Mjög góður sóknarleikmaður”
“Skorari sem þú vilt ekki að verði „heitur“ á móti þér”
“Skipti litlu máli hvar hann var á vellinum eða á móti hverjum, hann skoraði þegar hann vildi”
“Fjölhæfur leikmaður sem getur verið erfitt að match up á móti honum, góð skytta, getur sett boltan í gólfið og spilað með bakið í körfuna”
“Ófáir þristarnir sem maður hefur séð hann negla í smettið á andstæðingum”
“Með einn af fallegri "jumperum" sem ég hef séð”
“Argasta ljúfmenni þessi piltur”
“Nett bilaður á velli. Ljúfmenni utan vallar.”
Þjálfari: Israel Martin
Mynd: Karfan
Leikir: 33
Eitthvað hefur þjálfari Tindastóls frá síðustu leiktíð skilið eftir sig hjá áhangendum Tindastóls. Á hans fyrsta tímabili, með lið, sem aðeins árinu áður hafði komið upp úr 1. deildinni. Fer hann með þá alla leið í lokaúrslit gegn KR.
Hvað sögðu álitsgjafarnir:
“Leikgreindi hvern leik svo vel að áhangendur liðsins sáu það meira að segja í leikjum”
“Gerði frábæra hluti með liðið á þessu eina tímabili”
“Lifði sig inní starfið”
“Fagmennskan uppmáluð”
“Kom liðinu í úrslit Íslandsmóts á sínu fyrsta tímabili”
“Allir virtust sáttir með sitt hlutverk í liðinu”
“Israel Martin sá besti sem við höfum fengið”
“Mikil eftirsjá af honum á Króknun”
Einnig nefndir:
Ísak Einarsson, Darrell Lewis, Eyjólfur Sverrisson, Lárus Dagur Pálsson, Kári Marísson, Helgi Freyr Margeirsson, Axel Kárason, Óli Barðdal, Darrell Flake, Ómar Örn Sigmarsson, Hinrik Gunnarsson, Milan Rosenik, Sverrir Þór Sverrisson.