8:20
{mosimage}
Einn allra besti sóknarmaður Iceland Express-deildar karla í körfubolta hefur ákveðið að spila með 1. deildarliði Breiðabliks næstu tvö tímabil.
„Ég ákvað þetta sjálfur og fékk stuðning frá Fjölni til þess að fara. Þeir skildu mig og mína afstöðu og ég er mjög þakklátur fyrir það," segir Sovic, sem segir ekki hafa komið til greina að fara í annað félag.
„Það vó þungt í minni ákvörðun að Breiðablik er með gott lið og að ég gæti spilað í Iceland Express-deildinni sem fyrst aftur. Ég valdi líka að fara til Breiðabliks út af Einari Árna þjálfara. Ég hef mikla trú á honum og ég get vonandi hjálpað Breiðabliki að komast upp í Iceland Express-deildina. Það var minn fyrsti kostur í stöðunni að spila með Breiðabliki," sagði Sovic, sem hefur gert frábæra hluti með Fjölni undanfarin ár.
Það eru örugglega fáir búnir að gleyma því þegar hann lék veikur gegn Tindastóli í síðustu umferðinni síðasta vor en hjálpaði Fjölni til þess að halda sæti sínu með því að skora 41 stig og taka 13 fráköst í sjö stiga sigri.
„Mér fannst þetta vera rétti tíminn til þess að yfirgefa Fjölni. Tíminn hjá Fjölni var mjög góður og ég var mjög ánægður með þau þrjú og hálft ár sem ég eyddi í Grafarvoginum. Það var best í stöðunni fyrir alla að ég færi," sagði Nemanja Sovic.
„Byrjunin á tímabilinu er búin að vera erfið og það er mín tilfinning að liðinu muni ganga betur án mín," sagði Sovic en Fjölnir tapaði þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í Iceland Express-deildinni. Sovic átti mjög góðan dag í eina sigrinum, sem kom gegn Stjörnunni, en hann kom þá með 20 stig, 10 fráköst og 5 varin skot inn af bekknum.
Sovic hefur byrjað á bekknum í öllum leikjunum en spilaði það eitthvað inn í ákvörðun hans?
„Það var erfitt fyrir mig að taka því að ná ekki að vinna mér sæti í byrjunarliðinu en það var þó ekki aðalástæðan fyrir því að ég vildi fara," sagði Sovic. Hann hætti einnig þjálfun kvennaliðs Fjölnis, sem hefur tapað öllum leikjum sínum í vetur en engu að síður staðið sig vel í frumraun sinni í efstu deild.
„Það var mjög erfitt að yfirgefa kvennaliðið og mér líður verst út af því. Ef stelpurnar fá bandarískan leikmann geta þær gert ýmislegt í þessari deild. Ég er mjög ánægður með þær hingað til í vetur, þær eru að standa í liðunum og eru ekki að tapa leikjunum illa þrátt fyrir að spila ekki með bandarískan leikmann. Það sýnir okkur að það er mikið varið í þessar stelpur því öll önnur lið deildarinnar eru með bandarískan leikmann innan sinna raða," segir Sovic, sem ætlar að spila sinn fyrsta leik með Breiðabliki gegn Ármanni/Þrótti í kvöld.
Mynd: [email protected]



