Hin 16 ára gamla Berglind Katla Hlynsdóttir hefur farið á kostum með U20 landsliði Íslands í körfubolta í A-deild EuroBasket sem fram fer í Litháen. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún verið algjör lykilmaður og sýnt frábæra frammistöðu á mótinu gegn bestu leikmönnum Evrópu í þessum aldursflokki.
Frammistaða Berglindar hefur vakið verðskuldaða athygli og er hún nú á meðal þeirra leikmanna sem tilnefndir eru í kjörinu um mikilvægasta leikmann mótsins (MVP) á opinberu vefsíðu FIBA.
Þetta er magnaður árangur og frábært tækifæri til að sýna okkar stúlku stuðning á stóra sviðinu!
Kjörið er opið öllum og hægt er að leggja sitt af mörkum og kjósa Berglindi Kötlu sem MVP með því að smella á tengilinn hér að neðan:
👉 Smelltu hér til að kjósa Berglindi Kötlu á vef FIBA




