Hin stórefnilega Berglind Katla Hlynsdóttir mun ekki leika með Stjörnunni í vetur heldur halda vestur um haf, þar sem hún gengur til liðs við hinn öfluga menntaskóla Long Island Lutheran í New York.
Berglind Katla hefur leikið með Stjörnunni frá barnsaldri og spilað síðustu tvö keppnistímabil í Bónusdeild kvenna. Hún hefur verið áberandi í yngri landsliðum Íslands og fór með stórt hlutverk í bæði U16 og U20 ára liðum landsins sem áttu góðu gengi að fagna í sumar, auk þess sem hún spilaði sína fyrstu leiki með A-landsliðinu í haust.
Stjörnumenn óska Berglindi Kötlu alls hins besta í Bandaríkjunum og hlakka til að fylgjast náið með framgöngu hennar í vetur.




