Dominos deild kvenna hefst í kvöld með fjórum leikjum. Líkt og áður er mikil spenna fyrir nýju tímabili en miklar breytingar hafa orðið á liðunum sem gerir spennuna jafnvel enn meiri fyrir þetta tímabil.
Karfan hitar upp fyrir tímabilið með því að fara yfir öll liðin og ræða við leikmann eða þjálfara liðsins. Þá er komið að Snæfell.
Snæfell
Eftir brösugt gengi á síðustu leiktíð virðist Snæfell vera búið að ná vopnum sínum á ný. Hólmarar hafa bætt við sig leikmönnum úr öllum áttum og er spáð góðu gengi í vetur. Liðið þarf að biðja til Margrétar danadrottningar að halda þeim frá meiðslum sem hafa hrjáð liðið síðustu leiktíðir.
Spá KKÍ: 2. sæti
Lokastaða á síðustu leiktíð: 6. sæti
Þjálfari liðsins: Baldur Þorleifsson
Leikmaður sem vert er að fylgjast með: Heiða Hlín Björnsdóttir. Hún hefur verið frábær í 1. deildinni með Þór en fær nú verðskuldað tækifæri í efstu deild. Skorari af guðs náð sem verður spennandi að fylgjast með
Komnar og farnar:
Baldur Þorleifsson (þjálfari)
Heiða Hlín Björnsdóttir frá Þór Ak
Katarina Matijosie frá Króatíu
Angelika Kowalska frá Cournon D’Auvergne (Frakklandi)
Farnar:
Ingi Þór Steinþórsson til KR (þjálfari)
Sara Diljá Sigurðardóttir til Fjölnis
Bryndís Guðmundsdóttir til Keflavíkur
Kristín B. Sigfúsdóttir hætt
María Björnsdóttir meidd
Viðtal við Berglindi um komandi leiktíð:




