Fjölnir urðu VÍS bikarmeistarar í 11. flokki drengja í dag eftir sigur gegn KR í úrslitaleik í Smáranum, 79-77.
Leikurinn var sá síðasti þessa vikuna, en alls fóru fram þrír úrslitaleikir í dag. Hér má sjá umfjöllun um alla leiki VÍS bikarvikunnar.
Karfan spjallaði við leikmann Fjölnis Benóný Gunnar Óskarsson eftir leik í Smáranum, en hann var valinn maður leiksins eftir úrslitaleikinn. Fyrir utan körfurnar mikilvægu á lokasekúndunum var hann með 20 stig, 11 fráköst, 3 stoðsendingar, 3 stolna bolta og varið skot á rúmum 38 mínútum spiluðum.




