spot_img
HomeFréttirBenóní frábær í öruggum sigri Íslands

Benóní frábær í öruggum sigri Íslands

Undir 16 ára drengjalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumóti í Skopje í Makedóníu.

Í dag sigraði liðið Búlgaríu í fyrsta leik sínum í umspili um sæti 9 til 16 á mótinu, 72-89.

Atkvæðamestur fyrir Ísland í leiknum var Benóní Andrason með 29 stig, 10 stig, 5 stoðsendingar og 3 stolna bolta. Honum næstir voru Steinar Rafnarson með 15 stig og Daníel Snorrason með 13 stig.

Næst mun Ísland því leika gegn Svíþjóð á morgun í umspili um sæti 9 til 12 á mótinu.

Tölfræði leiks

Upptaka af leiknum

Fréttir
- Auglýsing -