Stjórn KKÍ hefur ákveðið að senda U-20 ára landsliðið karla í Evrópukeppnina 2011. Keppnin mun fara fram í Sarajevo, Bosníu dagana 14. – 24. júlí.
Benedikt Guðmundsson sem hefur þjálfað mörg yngri landslið KKÍ með góðum árangri hefur verið ráðinn þjálfari liðsins. Það kemur í ljós 15. janúar hvaða þjóðir verða með Íslandi í riðli.




