Í annað sinn á tímabilinu tókst nýliðum Þórs að leggja Grindavík í Iceland Express deild karla þegar liðin mættust í Icelandic Glacial Höllinni í kvöld. Karfan.is ræddi við Benedikt Guðmundsson þjálfara Þórsara eftir sigurinn og sagði hann mikilvægt að liðið og fólk í kringum það passaði upp á að ofmetnast nú ekki.
Fer körfuboltaheimurinn á Íslandi ekki að taka ykkur háalvarlega núna?
,,Fólk hér í Þorlákshöfn gerir það allavega og er ánægt með stöðuna og ég veit ekki hvort nýliðar hafi verið í þessari stöðu áður. Við höfum samt ekki unnið neina titla ennþá og pössum okkur á því að ofmetnast ekki. Við megum alls ekki halda að nú séum við einhverjir ógurlegir spaðar heldur halda bara áfram á okkar braut. Það er auðvelt að missa sig í velgengni en maður hefur lært það með tímanum að missa sig ekki í gleði og heldur sökkva ekki of djúpt þegar ekki gengur nægilega vel," sagði Benedikt sem var ánægður með varnarleikinn í kvöld enda hélt Þór gestum sínum úr Grindavík í 69 stigum.
,,Grindavík byrjaði betur í kvöld, það var svo jafnt í hálfleik en við byrjuðum seinni hálfleik mjög sterkt og náum tíu stiga forystu og mest varð hún 16 stig og héldum Grindavík bara fjarri okkur eftir það. Ég er sáttastur með varnarleikinn, við unnum Grindavík síðast með 2-3 svæðisvörn í 40 mínútur. Mér finnst við orðið það gott maður á mann lið að ég notaði ekki svæðisvörn í kvöld heldur lékum við maður á mann í 40 mínútur og það gekk glimrandi. Við héldum þeim í 69 stigum og þá eru góðar líkur á því að vinna leiki."
Aðspurður hvort ekki væri mikilvægt að fá Grétar Inga aftur inn í hópinn svaraði Benedikt:
,,Það skiptir okkur miklu máli, honum gekk fínt í kvöld og á bara eftir að vaxa. Núna kom hann og var með gott framlag og ég er ekkert smeykur um að hann sé að fara sér of geyst eftir meiðslin enda hefur hann æft vel og passað upp á sig."
Miðað við árangur kvöldsins er þá ekki eðlilegt að fólk gefi ykkur bara næstu sex stig gegn Tindastól, Val og Haukum?
,,Það er margt hættulegt í þessu, menn höndla mótlæti misjafnlega, sumir eflast, aðrir brotna og við förum núna í það að missa okkur ekki í velgengni. Fólk í kringum okkur má ekki halda að við séum eitthvert Lakers lið! Allir leikir okkar í vetur hafa verið hörku leikir, sama hvort það hafi verið gegn Haukum eða Grindavík. Eftir sigur gegn Stjörnunni og Keflavík mætum við eins og fávitar til leiks í Grafarvogi en náðum samt að snúa því okkur í vil. Þar héldu menn að þeir væru bara ,,komnir með þetta" þannig að það er óhætt að segja að það séu sveiflur í þessu," sagði Benedikt en benti á að Þór átti meira undir leik kvöldsins en gulir deildarmeistararnir.
,,Það verður að taka það með í reikninginn að við höfðum að miklu meira að keppa en Grindavík í kvöld og okkur langaði miklu meira í þennan sigur."



