spot_img
HomeFréttirBeint: Ísland mætir Svíþjóð í 16 liða úrslitum

Beint: Ísland mætir Svíþjóð í 16 liða úrslitum

Sextán liða úrslit evrópukeppni U20 landsliða fara fram í dag með átta leikjum. Íslendingar ríða á vaðið og andstæðingarnir eru ekki algjörlega óþekkt stærð. 

 

Það eru nágrannar Íslands, Svíþjóð sem bíða Íslands í 16 liða úrslitum mótsins. Svíþjóð endaði í öðru sæti A-riðils en Grikkland vann riðilinn nokkuð örugglega. Með sigri Íslands á Svartfjallalandi losnaði liðið við að mæta heimamönnum í Grikklandi sem þykir ansi sigurstranglegt lið á mótinu. 

 

Ísland mætti Svíþjóð á æfingamóti sem fram fór í Reykjavík fyrir nokkrum vikum. Þar vann Ísland þriggja stiga sigur eftir frábæra endurkomu í lokin. Íslenska liðið spilaði alls ekki frábærlega í þeim leik og því má segja að möguleikar Íslands á að komast í átta liða úrslit séu að minnsta kosti til staðar. 

 

Sigur í 16 liða úrslitum þýðir ekki bara að liðið tryggir sér í átta efstu sæti keppninnar heldur er Ísland þar með með tryggt áframhaldandi sæti í A-deild að ári sem var stærsta markmið mótsins.  Svíar eru með sterkt lið í ár og unnu góða sigra á Þýskalandi og Tékklandi, það er því erfiður leikur framundan.

 

Íslenski hópurinn er þannig skipaður:

 

4. Halldór Garðar Hermannson – Þór Þorlákshöfn

5. Arnór Hermannsson – KR

6. Ingvi Þór Guðmundsson – Grindavík

7. Snorri Vignisson – Breiðablik

8. Kristinn Pálsson – Marist, USA

9. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR

10. Kári Jónsson – Drexel, USA

11. Snjólfur Stefánsson – Njarðvík

12. Eyjólfur Ásberg Halldórsson – Skallagrímur

13. Breki Gylfason – Haukar

14. Sæþór Elmar Kristjánsson – ÍR

15. Tryggvi Snær Hlinason – Þór Akureyri

Fréttir
- Auglýsing -