Íslenska U20 landsliðið mætir Tyrklandi í öðrum leik liðsins í B-riðli Evrópumóts U20 landsliða sem fram fer í Grikklandi þessa dagana.
Í liði Tyrklands eru gríðarlega sterkir leikmenn á borð við Omer Yurtsevin sem leikur með NC state háskólann. Hann var talinn líklegur til að taka þátt í nýliðavali NBA deildarinnar í ár en ákvað að leika í eitt ár í háskólaboltanum í viðbót. Omer átti ótrúlegan leik gegn Svartfjallalandi í gær en hann skilaði 16 stigum og 18 fráköstum.
Í liðinu er einnig leikmaður að nafni Furkan Korkmaz sem samdi við lið Philadelphia 76ers fyrr í sumar. Furkan var valinn númer 26 í nýliðavali NBA deildarinnar fyrir ári síðan en lék eitt ár í viðbót í tyrknesku deildinni með Banvit. Þar var hann valin besti ungi leikmaður meistaradeildar evrópu auk þess að vinna tyrknesku bikarkeppnina.
Það verður áhugavert að sjá hann og Tryggva Snæ Hlinason mætast á vellinunm en báðir áttu frábæran leik í gær. Bæði Ísland og Tyrkland töpuðu sínum leikjum í gær og því mikilvægt fyrir bæði lið að komast á blað. Leikurinn hefst kl 13:45 og er í beinni útsendingu á netinu.
Beina útsendingu af leik Íslands og Tyrklands má finna hér að neðan: