Íslenska U20 landsliðið mætir Svartfjallalandi í lokaleik riðlakeppni Evrópumóts U20 landsliða sem fram fer í Grikklandi þessa dagana.
Þessi lið mættust í úrslitaleik B-deildar evrópumótsins fyrir ári síðan en þá hafði Svartfjallaland sigur á lokasekúndum leiksins í algjörum háspennuleik. Leikmenn liðsins töluðu um það eftir tapið gegn Tyrklandi í gær að ekkert annað en hefnd væri í boði í leiknum.
Finnur Freyr sagði í viðtali í gær Svartfjallaland vera með lægra lið nú enn í fyrra en liðið vann þó Tyrkland í fyrsta leik mótsins. Sigur á morgun þýðir að liðið sleppur við að mæta efsta liðinu í A-riðli sem verður líklega Grikkland í 16 liða úrslitum. Leikurinn á morgun er því gríðarlega mikilvægur fyrir möguleika Íslands á mótinu. Segja má að leikurinn í dag sé úrslitaleikur um þriðja sæti riðilsins.
Beina útsendingu af leik Íslands og Tyrklands má finna hér að neðan – Leikurinn hefst kl 11:30 að íslenskum tíma.
Íslenski hópurinn er þannig skipaður:
4. Halldór Garðar Hermannson – Þór Þorlákshöfn
5. Arnór Hermannsson – KR
6. Ingvi Þór Guðmundsson – Grindavík
7. Snorri Vignisson – Breiðablik
8. Kristinn Pálsson – Marist, USA
9. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR
10. Kári Jónsson – Drexel, USA
11. Snjólfur Stefánsson – Njarðvík
12. Eyjólfur Ásberg Halldórsson – Skallagrímur
13. Breki Gylfason – Haukar
14. Sæþór Elmar Kristjánsson – ÍR
15. Tryggvi Snær Hlinason – Þór Akureyri